Upp með húmorinn: - Séníin í Holti í Önundarfirði
Við skulum nú aðeins gægjast á teikniborðið hjá Vestfirska forlaginu. Þar er nú í smíðum bók sem væntanlega mun hljóta nafnið 100 sannar vestfirskar þjóðsögur í léttum dúr eða eitthvað í þá áttina. Hér er um að ræða úrval úr sagnabanka Vestfirska forlagsins.
Hér kemur fyrsta sagan og sýnir hún glögglega hvað Vestfirðingar eru miklir húmoristar!
Séra Gunnar Björnsson, fyrrum sóknarprestur í Holti í Önundarfirði, er einn af þeim mönnum sem er margt til lista lagt. Margir segja að hann sé eins og hvert annað séní.
Nú var það hér á árunum, að fjölmiðlar voru að fjalla um þau hjónakornin í Holti af vissum ástæðum.
Svo var það að einn góður blaðamaður hringdi í Holt. Frú Ágústa Ágústsdóttir, eiginkona Gunnars prests, varð fyrir svörum.
Hvernig er að vera í hjónabandi með séníi, spurði blaðamaðurinn.
Ég get nú lítið sagt um það, svaraði frú Ágústa. Þú ættir frekar að spyrja manninn minn.