A A A
  • 1958 - Helga Sigurrós Bergsdóttir
  • 1976 - Gunnar Ragnar Hjartarson
  • 1993 - Karín Mist Kjerúlf
10.01.2018 - 20:58 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Stjórnarráðið,Vestfirska forlagið

Umhverfis- og auðlindaráðherra á ferð um Vestfirði

Frá fundi umhverfis- og auðlindaráðherra á Patreksfirði í dag.
Frá fundi umhverfis- og auðlindaráðherra á Patreksfirði í dag.

Þriggja daga ferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um Vestfirði hófst í dag. Í ferðinni hittir ráðherra m.a. fulltrúa sveitarstjórna, atvinnulífs, umhverfisverndarsamtaka, starfsmenn stofnana og heimafólk.

Ráðherra vill með heimsókninni kynna sér þau mál sem eru í deiglunni á landssvæðinu er tengjast málefnasviðum umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Má þar nefna skipulagsmál, raforkuöryggismál, náttúruvernd, samgöngumál, fiskeldi og fleira.

Ferðina hóf ráðherra í dag á Bíldudal þar sem hann kynnti sér fiskeldismál áður en hann fundaði á Patreksfirði með sveitarstjórnarfulltrúum frá Vesturbyggð og Tálknafirði.

Auk ofangreindra staða mun ráðherra hafa viðkomu í Reykhólasveit, Ísafirði og á Bolungarvík en á þessum stöðum fundar hann með fólki víðar af Vestfjörðum.  Að auki mun hann eiga fjarfund með sveitarstjórnarfólki í Árneshreppi.


« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31