A A A
  • 1940 - Ólafur Steinþórsson
  • 1953 - Björn Ingi Bjarnason
  • 1966 - Francis Bryan Haughey
  • 2002 - Amonrat Phothiya
30.06.2008 - 00:18 | bb.is

Umferðarslys í Dýrafirði

Lögregla var kölluð út vegna umferðarslyss á ellefta tímanum í dag.
Lögregla var kölluð út vegna umferðarslyss á ellefta tímanum í dag.
Umferðarslys var á Vestfjarðarvegi nálægt bænum Höfða í Dýrafirði á ellefta tímanum í morgun. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var ökumaður einn í bílnum en hann mun hafa beinbrotnað. Sjúkrabifreið kom á vettvang og fór með ökumanninn á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Að svo stöddu er ekki vitað um orsök slyssins en málið er í rannsókn. Að sögn lögreglu er ljóst að verr hefði getað farið, ökumaður var í bílbelti og það hefði sennilega bjargað lífi hans.
« Júlí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31