08.09.2015 - 06:50 | BIB,Grunnskóli Þingeyrar
Umboðsmaður barna kom í Þingeyrarskóla
Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, heimsótti Þingeyrarskóla að morgni þess 31. ágúst 2015 og fór yfir hlutverk hans og kynnti sig fyrir nemendum.
Hlutverk umboðsmanns barna: Umboðsmaður barna vinnur að því að bæta hag barna og unglinga og á að gæta þess að tekið sé tillit til réttinda barna, þarfa og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. Nemendur fengu öll - verum vinir- spjald og bækling um réttindi barna.
Nemendur á mið,- og elsta stigi horfðu svo á myndband um mannréttindi (myndbandið er hægt að finna á www.youtube.com/watch?v=68tNnY7TKhw).
Fleiri upplýsingar fyrir nemendur og foreldra er að finna á vefsíðu umboðsmanns barna www.barn.is
Endilega kíkið á þetta og ræðið við foreldra/börn.Margrét María Sigurðardóttir er lögfræðingur frá HÍ og með kennsluréttindi frá HA. Hún tók við embætti umboðsmanns barna 1. júlí 2007 og var endurskipuð 2012.
Af heimasíðu Grunnskóla Þingeyrar: http://grthing.isafjordur.is/