09.05.2016 - 06:51 | Vestfirska forlagið
ÚTHLUTUN ÚR SAFNASJÓÐI 2016
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað úr safnasjóði 2016, alls 108,4 milljónum króna.
Af þeirri upphæð renna 78,8 milljónir til einstakra verkefna en tæpar 30 milljónir í rekstrarstyrki til viðurkenndra safna um land allt.
Alls bárust að þessu sinni umsóknir um styrki í samtals 152 verkefni.
Styrkjum er úthlutað til 93 verkefna og eru þeir frá 140.000 kr. upp í 2,9 m.kr.
(PDF skjal)Hér má sjá lista yfir úthlutun úr sjóðnum í ár. http://www.safnarad.is/media/uthlutanir/HeildarlistiAheimasiduSafnasjodur2016Styrkir.pdf