UMSÓKNARFRESTUR EYRARRÓSAR
Eyrarrósin verður veitt í fjórtánda sinn í mars 2018, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar.
Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005.
Verðlaunin eru veitt verkefnum sem hafa fest sig í sessi, eru vel rekin og hafa haft varanlegt gildi fyrir lista- og menningarlíf í sínu byggðarlagi.
Sex verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta svo tilnefningu til sjálfrar Eyrarrósarinnar sem verður afhent við hátíðlega athöfn 1. mars 2018. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afendir verðlaunin.
Eyrarrósinni fylgja peningaverðlaun að upphæð 2.000.000 krónur. Hin tvö tilnefndu verkin hljóta einnig peningaverðlaun; 500 þúsund hvort.
Öllum umsóknum verður svarað.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL MIÐNÆTTIS 15. JANÚAR 2018