A A A
18.04.2015 - 20:36 | Hallgrímur Sveinsson

Tvær lambadrottningar fæddar í Haukadal í Dýrafirði.

Mamman heitir Spök. Ljósm.: Hallgrímur Sveinsson.
Mamman heitir Spök. Ljósm.: Hallgrímur Sveinsson.
« 1 af 4 »

Lambakóngur og lambadrottning nefnast fyrstu lömbin sem fæðast á sauðburði á vorin hjá sauðfjárbændum.

Fyrir nokkrum dögum fæddust tvö gimbrarlömb hjá Kristjáni Gunnarssyni og Ólafíu Sigurjónsdóttur, bændum í Haukadal. Þetta eru lambadrottningarnar á þeim bæ í ár og fæðast um mánuði fyrir venjulegan burð ánna hjá þeim hjónum.

Lömb sem fæðast fyrir tímann eru stundum kölluð fyrirmálslömb. Berast böndin að lambhrút nokkrum sem Friðbert bóndi í Hólum átti í Haukadal í haust.

   Hún Helga María, fjögurra ára, er vinnukona hjá afa sínum og ömmu þessa dagana. Greinilegt er að hún er með þetta allt á hreinu eins og fram kemur á meðfylgjandi myndum.

   Ekki vitum við um önnur fyrirmálslömb í Dýrafirði enn sem komið er. 

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30