14.11.2009 - 14:09 | 
		
	Troðið var út úr dyrum á vestfirsku bókakynningunni
	
		
		Ólafur Helgi Kjartansson og Hafliði Magnússon lásu upp úr bókum sínum á vestfirskri bókakynningu sem haldin var í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi í gærkveldi. Þar fluttu einnig létta tónlist; Vestfirðingarnir Pétur Bjarnason frá Bíldudal og Ólafur Sæmundsson frá Patreksfirði. Öll lögin sem sungin voru höfðu texta Hafliða Magnússonar. Sérstakur gestur á vestfirsku bókakynningunni var Hallgrímur Sveinsson á Þingeyri, hinn dugmikli framkvæmdastjóri Vestfirska forlagsins og ávarpaði hann samkomugesti.
Hægt er að sjá fleiri myndir hér sem Guðmundur J. Sigurðsson tók í Sunnlenska bókakaffinu í gærkveldi.
	
	
	
	
Hægt er að sjá fleiri myndir hér sem Guðmundur J. Sigurðsson tók í Sunnlenska bókakaffinu í gærkveldi.


		
		
















