A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
31.07.2010 - 00:18 | bb.is

Tíu milljónir til viðhalds á Núpi

Núpur í Dýrafirði.
Núpur í Dýrafirði.
Fyrrum héraðsskólinn að Núpi í Dýrafirði fær 10 milljónir til viðhaldsframkvæmda á þessu ári af þeim 500 milljónum sem fara til viðhalds og endurbætur opinberra bygginga í landinu. Mest kemur í hlut Miðbæjarskólans í Reykjavík eða 120 milljónir króna. Landspítalinn fær 90 milljónir til ýmissa endurbóta og verkefna og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fær 60 milljónir. „Verkefnin voru valin með áherslu á mannaflsfrekar viðhaldsframkvæmdir, sem gagnast helst þeim landsvæðum þar sem atvinnuleysi er mikið, og þær byggingar þar sem bæta megi aðgengi fatlaðra. Allar byggingarnar eru í opinberri eigu; söfn, heilbrigðis- og heilsugæslustofnanir og húsnæði tengt menntamálum," segir í frétt Fréttablaðsins.

 

Skóli fyrir unglinga var stofnaður að Núpi fyrir rúmlega hundrað árum, í janúar árið 1907, að frumkvæði séra Sigtryggs Guðlaugssonar. Tuttugu árum síðar var skólanum breytt í héraðsskóla, sem starfræktur var til ársins 1992. Undanfarin ár hefur þar farið fram hótelrekstur, m.a. Edduhótel en nú er þar rekið Hótel Núpur.

« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31