15.11.2016 - 09:31 | bb.is,Vestfirska forlagið,visir.is
Tilboð í Dýrafjarðargöng opna í byrjun næsta árs
Vegagerðin hefur tilkynnt þeim bjóðendum sem ætla að gera tilboð í Dýrafjarðargöng að útboð verði opnuð í janúarbyrjun. Tilboðin verða hins vegar ekki opnuð nema Alþingi verði þá búið að samþykkja fjárlög. Frá þessu er greint á vef Vísis.
Dýrafjarðargöng eru stærsta verkefnið á þeirri samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti í haust, en þau eru talin kosta yfir níu milljarða króna.
Í forvali á evrópska efnahagssvæðinu voru sjö verktakasamsteypur metnar hæfar til að bjóða í verkið. Þær samanstanda af fyrirtækjum frá Íslandi, Danmörku,Tékklandi, Sviss, Noregi, Portúgal, Ítalíu og Spáni en Vegagerðin sendi útboðsgögn til þeirra í dag.
Tilboðin á að opna þann 10. janúar 2017.