A A A
  • 1932 - Kristín Kristjánsdóttir
  • 2004 - Óttar Pétursson
  • 2006 - Carmen Kristín Vignisdóttir
12.03.2019 - 15:34 |

Þúsundasta sprengingin

Útsýnið sem mun blasa við þegar komið er úr göngunum í Dýrafirði
Útsýnið sem mun blasa við þegar komið er úr göngunum í Dýrafirði
« 1 af 5 »

Í viku 10 voru grafnir 90,9 m í göngunum Dýrafjarðarmeginn. Á föstudeginum var sprengd færa númer 1000  og eru þá ótaldar allar sprengingarnar sem fóru í að grafa hliðarrýmin í útskotunum. Grafnir voru 4.876,8 m í þessum 1000 sprengingum.  Lengd ganganna í Dýrafirði var í lok vikunnar 1.239,2 m sem er 75,4 % af leggnum sem er eftir og er búið að grafa í heildina 92,4 % af göngunum. Eru núna 404,2 m að gegnumbroti.

 

Grafið var í basalti og þunnum setlögum ásamt því að grafið var í gegnum 7 m þykkan berggang. Allt efni úr göngunum var keyrt beint í vegfyllingu.

 

Í göngunum Arnarfjarðarmeginn var haldið áfram með gröft og jöfnun á lagnaskurðum, fleygun fyrir brunnum og undirbúið fyrir lagnavinnu.

 

Í vegagerð Dýrafjarðarmegin var unnið við grjótröðun eftir veginum sem liggur meðfram sjó að þveruninni yfir Dýrafjörð. Haldið var áfram með fyllingar í vestur frá munnanum og fyllingar hækkaðar með efni úr göngunum. Einnig voru sett niður tvö ræsi.

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá útsýnið sem mun blasa við þegar komið er úr göngunum í Dýrafirði, þegar verið er að hlaða sprengiefni í göngunum, snjóhreinsun af vegstæðinu og vegstæðið við þverunina yfir Dýrafjörð.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31