A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
04.02.2016 - 18:14 | Vestfirska forlagið,Komedia,BIB

Þrjú leikrit með einum og sama leikaranum

Útlagapartý. - Bílddælingurinn og tengdasonur Dýrafjarðar Elfar Logi Hannesson.
Útlagapartý. - Bílddælingurinn og tengdasonur Dýrafjarðar Elfar Logi Hannesson.

Kómedíuleikhúsið ætlar að sýna þrjá einleiki sama kvöldið og er sami leikari í þeim öllum. 

Verkin þrjú sem sýnd verða eru verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson, hinn ómótstæðilegi Grettir og loks sjálfur Fjalla-Eyvindur. Einleikirnir eiga það sameiginlegt að fjalla um útlaga; þrjá þekktustu útlaga Íslandssögunnar.

Leikari í öllum þremur verkunum er hinn margslungni Elfar Logi Hannesson.

Sýningarstaðurinn er Félagsheimilið í Bolungarvík og sýnt verður föstudaginn 4. mars 2016.

Stutt hlé verður gert á milli leikja og víst er að þetta verður varla endurtekið. Rétt er að hvetja áhugasama áhorfendur til að tryggja sér miða strax á þrennu Kómedíuleikhússins í Bolungarvík. Miðasala er þegar hafin í síma 690 2303.

Nú liggur enn eitt ævintýrið í loftinu fyrir leiklistarunnendur en Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur sannarlega vakið athygli fyrir að fara sínar eigin kómísku leiðir.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30