06.01.2015 - 20:44 | bb.is,BIB
Þrettándagleði á Þingeyri frestað til 10. jan. 2015
Íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri og Björgunarsveitin Dýri halda árlega þrettándagleði og flugeldasýningu á Þingeyri. Svo er þó ekki í ár því gleðinni hefur verið frestað fram til 10. janúar. Þá ætlar fólk að hittast á Brekkugötu kl 17 og aldrei að vita nema einhverjir álfar og aðrar ómennskar verur láti sjá sig.
Á Þingeyri er jafnframt hefð fyrir því að börn maski á þrettándanum. Þá klæða þau sig í grímubúninga og fara út á meðal manna í von um góðgæti að launum.
Á Þingeyri er jafnframt hefð fyrir því að börn maski á þrettándanum. Þá klæða þau sig í grímubúninga og fara út á meðal manna í von um góðgæti að launum.