A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
04.01.2013 - 20:03 | Tilkynning

Þrettándagleði

Frá þrettándagleðinni í fyrra. Mynd: JÓH
Frá þrettándagleðinni í fyrra. Mynd: JÓH
Björgunarsveitin Dýri og Íþróttafélagið Höfrungur heldur sína árlegu þrettándagleði sunnudaginn 6. janúar kl. 17.00. Komið er saman að venju innst á Brekkugötu og þar verða seldir kyndlar á vægu verði. Athugið að aðeins 10 ára og eldri fá leyfi til að vera með kyndla. Er það von okkar að þeir álfar sem eru á ferðinni á þrettándanum mæti í sínum fínu fötum sem fyrr og heiðri okkur með nærveru sinni. Gengið verður sömu leið og áður, nema að nú verður gengið inn Vallargötu og gangan mun enda við jólatréð við höfnina. Kveiktur verður eldur og sungið saman, og að sjálfsögðu verða harmonikkur með í spilinu. Samkoman endar svo með flugeldasýningu. Íþróttafélagið Höfrungur og Björgunarsveitin Dýri
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31