A A A
  • 1992 - Hannes Pétur Einarsson
  • 1994 - Jón Þorri Jónsson
Íþróttahúsið á Þingeyri. Mynd: Bergþór Gunnlaugsson
Íþróttahúsið á Þingeyri. Mynd: Bergþór Gunnlaugsson
Samkvæmt útreikningum Þingeyrarvefsins munu 5,1% íbúa á Ísafirði hafa nýtt sér ókeypis aðgang að sundhöll Ísafjarðar á aðfangadag. Það þykir ágætis mæting að sögn Jóhanns Bærings Gunnarssonar, umsjónarmanns eigna hjá Ísafjarðarbæ. Hann taldi að fleiri hefðu mætt, hefði veðrið verið betra (sjá http://bb.is/Pages/26?NewsID=125773). Á Þingeyri nýttu 22,6% íbúa sér ókeypis aðgang að sundlauginni á staðnum þennan sama dag. Það þýðir að rúmlega fjórum sinnum fleiri fóru í sund á Þingeyri sé horft til fjölda íbúa á hvorum staðnum fyrir sig.

 

Á Ísafirði er íbúafjöldi 2733 og af þeim fóru 140 í sund á aðfangadag, sem sagt 5,1%.
Á Þingeyri er íbúafjöldi 265 og af þeim fóru 60 í sund á aðfangadag, sem sagt 22,6%.
Ástæðan fyrir því að íbúar á Þingeyri voru duglegri, en íbúar á Ísafirði, að nýta sér boð Ísafjarðarbæjar um ókeypis jólabað á aðfangadag gæti hugsanlega verið sú að veðrið á Þingeyri hafi verið aðeins betra þennan dag. Eða kannski er ástæðan einfaldlega sú að íbúar á Þingeyri eru alltaf duglegir að fara í sund!!!

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31