A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
05.02.2016 - 20:30 | Hallgrímur Sveinsson

Þingeyri við Dýrafjörð: Óveður á veðursælum stað!

Á Þingeyri við Dýrafjörð 5. febrúar 2016. Ljósm.: HS
Á Þingeyri við Dýrafjörð 5. febrúar 2016. Ljósm.: HS
« 1 af 3 »

Eins og margir vita, er Þingeyri við Dýrafjörð einhver veðursælasti staður á Íslandi og þó víðar væri leitað. En nú bregður svo við að þar á bæ hefur ekki verið hundi út sigandi frá því í gærkveldi. Mjög óvanalegt. Dregið hefur í mikla skafla víða. Hiti á núllinu. Sumir eru búnir að moka tvisvar frá útidyrunum í dag og dugir varla til. Götur kauptúnsins mega heita ófærar nema stærstu fjallabílum og slíkum tryllitækjum. Fáir á ferli nema þeir sem nauðsynlega mega til. 

Meðfylgjandi myndir voru teknar  í dag um hálf fimm þegar aðeins rofaði til. Þær segja meira en mörg orð. Ljósm. H. S.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30