02.10.2015 - 20:44 | bb.is,BIB
Þingeyri: -Verkstjóri og rekstrarstjóri reknir
„Við vorum rekin í gær, konan mín og ég,“ sagði Hafþór Guðmundsson nú fyrrverandi verkstjóri á Þingeyri í samtali við bb.is í gær. Hann var um árabil verkstjóri hjá Vísi hf. og síðan Íslensku sjávarfangi ehf. eftir að það fyrirtæki tók við rekstri frystihússins á Þingeyri. Sigríður Kristín Ólafsdóttir kona hans var rekstrarstjóri hjá sömu fyrirtækjum. Hafþór hefur enga aðra skýringu á brottrekstrinum en það sem hann hefur heyrt frá starfsfólkinu. „Þeir sögðu þeim í dag að við dönsum ekki á sömu línu og eigendurnir.“
Íslenskt sjávarfang tók við rekstri frystihússins á Þingeyri í vor eftir að Vísir hætti vinnslu í plássinu. Fyrirtækið rekur vinnsluna samkvæmt samkomulagi við Byggðastofnun um nýtingu á aflaheimildum stofnunarinnar.
„Það var ekki draumur okkur að þessir aðilar fengu kvótann og vinnsluna. Við höfðum meiri trú á Ísfirðingunum,“ segir Hafþór. Byggðastofnun auglýsti Þingeyrarkvótann í tvígang. Í fyrra skiptið sótti Valþjófur ehf. um kvótann en Byggðastofnun hafnaði umsókn fyrirtækisins. Í seinna skiptið sóttu Íslenskt sjávarfang og Útgerðarfélagið Otur ehf. um kvótann en Otur stundar útgerð á Ísafirði.
Hafþór segir að starfsemi Íslensks sjávarfangs á Þingeyri hafi gengið upp og ofan. „Það er fyrst núna að það er verið að vinna fisk að einhverju ráði, fyrir utan makrílfrystinguna í sumar.“
Hann segir að nánast engum fisk sé landað á Þingeyri heldur sé honum landað vítt og breitt um landið og keyrt með hann til Þingeyrar. „Trillurnar lönduðu hérna í sumar en fiskinum var öllum trukkað suður,“ segir Hafþór.