Þingeyrarvefurinn: - Rífandi gangur sem ekki gerist af sjálfu sér!
Þingeyrarvefurinn lætur ekki mikið yfir sér. Samt á hann marga trúfasta lesendur sem fylgjast grannt með öllu sem þar birtist.
Í gær, 9. ágúst 2016, voru til dæmis rúmlega 650 gestir sem komu á vefinn og í fyrradag, 8. ágúst 2016, voru þeir yfir 1.050 með um 2.200 flettingar. Svona er þetta bara frá degi til dags þó það séu nú ekki alltaf jólin sem betur fer, hvorki hjá okkur frekar en öðrum.
Þingeyrarvefurinn lætur sér ekkert vestfirskt óviðkomandi, þó einkum sé kastljósinu beint að Dýrafirði og nágrenni. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það kostar mikla vinnu að halda úti slíkum frétta-og mannlífsvef. Og áhuga. Meðan hann er fyrir hendi látum við ekki deigan síga.
Upp með Vestfirði!
Með baráttukveðjum.
Vestfirska forlagið Hallgrímur Sveinsson Björn Ingi Bjarnason