A A A
25.01.2016 - 17:22 | Vestfirska forlagið,bb.is

Þingeyrarþorrablótið 2016

Þorrablótsgleði. Ljósm.: bb.is
Þorrablótsgleði. Ljósm.: bb.is

Slysavarnardeildin Vörn hélt sitt þorrablót á Þingeyri laugardaginn 23. janúar 2016.

Að þessu sinni stóð þorrablótsnefndin í eldamennskunni sjálf og buðu upp á þetta fína hlaðborð af þorramat.
Blótið var vel sótt þetta árið, slagaði hátt í hundrað gesti. Að borðhaldi loknu stigu þeir Gummi Hjalta og Stebbi Jóns á stokk og héldu uppi stuðinu fram eftir nóttu. Húsfrú Helga Guðný í Botni stjórnaði gleðskapnum með sinni léttu lund og dýrt kveðnum vísum.

 

Inn á ljósmyndavef bb eru komnar myndir af herlegheitunum. 

 

Af: 

www.bb.is




« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30