A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
17.10.2017 - 17:10 | Vestfirska forlagið,Guðmundur Steinarr Gunnarsson

Það má finna ýmislegt fyrir vestan: - Antonov vélin á Hnjóti

Egill heitinn Ólafsson, sem er réttnefndur frumherji hér fyrir vestan og Guðmundur St. Gunnarsson við hina merkilegu Antonov flugvél á Hnjóti.
Egill heitinn Ólafsson, sem er réttnefndur frumherji hér fyrir vestan og Guðmundur St. Gunnarsson við hina merkilegu Antonov flugvél á Hnjóti.

Íslenskur flugmaður, sem staddur er í Budapest, sendi mér mynd af Antonov 2 flugvél sem er í eigu flugvallarstjórans þar og vekur mikla athygli.

   Antonov 2 var stærsta einshreyfilsvél sem framleidd hafði verið og var mikið notuð við áburðardreifingu og eins við fallhlífarstökk. Hún notar stuttar brautir og lendir því á litlum hraða.

    Ég var fljótur að svara og sagði honum að það væri ein slík flugvél fyrir vestan á safninu á Hnjóti og hér er mynd af mér og Agli heitnum Ólafssyni fv. safnstjóra við þessa Antonov 2 flugvél. Já það má finna ýmislegt fyrir vestan!

Guðmundur Steinarr Gunnarsson.   


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30