A A A
25.07.2016 - 20:05 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið

Sumarkvöld með Jónasi Tómassyni

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í Reykjavík.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í Reykjavík.
« 1 af 2 »
Tónleikar til heiðurs þessu ástsæla vestfirska tónskáldi sjötugu, Jónasi Tómassyni, verða í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í Reykavík á morgun, 26. júlí, kl. 20:30.

Flutt verður úrval einleiks-, einsöngs- og dúóverka frá ýmsum tímum á ferli hans.

Flytjendur eru söngkonurnar Herdís Anna Jónasdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, Leon van Mil sem leikur á baritónsaxófón og píanóleikararnir Tinna Þorsteinsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Anna Áslaug Ragnarsdóttir, en þau eru öll tengd Jónasi nánum fjölskyldu- eða vinaböndum.
« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30