13.01.2010 - 23:27 | BB.is
Styðja umsókn um rannsóknaleyfi
Bæjarráði Vesturbyggðar hefur borist beiðni frá Orkustofnun um umsögn um umsókn Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. um leitar- og rannsóknarleyfi á kalkþörungaseti í Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði. Bæjarráð styður umsókn Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. um leit og rannsóknir á kalkþörungaseti í Patreksfirði og beinir þeim vinsamlegu tilmælum til Tálknafjarðarhrepps og Ísafjarðarbæjar að styðja beiðni um leitar-og rannsóknarheimildir félagsins í Tálknafirði og Dýrafirði.