A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
08.10.2016 - 08:17 | Vestfirska forlagið,Stjórnarráðið,bb.is

Stórfellt átak í uppbyggingu ferðamannastaða

Dynjandi í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
Dynjandi í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
Uppbygging á ríflega eitt hundrað og þrjátíu ferðamannastöðum eru í forgangi strax á næsta ári í áætlun sem Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í morgun. Alls fara á þriðja milljarð króna í verkefnið. Tólfhundruð verkefni er lúta að uppbyggingu ferðamannastaða eru á nýjum lista umhverfisráðuneytisins til verndar náttúru og menningarminjum. 

Í vor samþykkti Alþingi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Þeim svipar til samgönguáætlunar í vegagerð það er að gerð er langtímaáætlun til tólf ára og verkefnaáætlun til þriggja ára. Lögin eru sett til að sporna við álagi af völdum ferðamennsku og útivistar. Í bráðabirgðaákvæði með lögunum er kveðið á um að leggja skuli fram áætlun fyrir næsta ár fyrir miðjan október. Búið er að kortleggja verkefnin og eru þau samtals 1200, búið er að forgangsraða þeim og ríflega 130 staðir eru í forgangi. 

Á Vestfjörðum eru þrettán staðir í forgangi. Þeir eru: 

• Bolafjall 
• Dynjandi 
• Flatey 
• Flókatóftir við Brjánslæk 
• Hornstrandir 
• Látrabjarg 
• Litlibær í Skötufirði 
• Naustahvilft í Skutulsfirði 
• Selárdalur 
• Skálavík 
• Surtarbrandsgil 
• Surtabrandsnáman í Syðridal í Bolungarvík 
• Vatnsfjörður á Barðaströnd. 


« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31