22.09.2014 - 10:40 | bb.is
Starfsmönnum Byggðasafnsins fjölgað
Föstum starfsmönnum Byggðasafns Vestfjarða verður fjölgað um einn og verða þeir því framvegis þrír.
Ákvörðun þessa efnis var tekin á síðasta stjórnarfundi safnsins. Fjölgunin kemur til vegna yfirtöku safnsins á Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri.
Á fundinum greindi Jón Sigurpálsson, forstöðumaður safnsins, frá því að sú hugmynd hefði komið upp hjá þjóðminjaverði og fleirum, að bátasafn Þjóðminjasafnsins verði varðveitt á Ísafirði á vegum Byggðasafnsins. Unnið er að áætlun um það verkefni.
smari@bb.is