A A A
  • 1950 - Árni Ásbjörn Jónsson
  • 1962 - Siggeir Stefánsson
12.01.2010 - 23:28 | Tilkynning

Spurningakeppnin Veistu hvað!

Íbúar Dýrafjarðar eru hvattir til að sameinast í spurningakeppni. Mynd: Davíð Davíðsson
Íbúar Dýrafjarðar eru hvattir til að sameinast í spurningakeppni. Mynd: Davíð Davíðsson
Nú er komið að því að sameina íbúa Dýrafjarðar og halda skemmtilega spurningakeppni á Veitingahorninu næsta föstudag klukkan 21.30 (strax á eftir Útsvari á RUV).

Fyrirkomulagið er mjög einfalt og verður spurningum varpað upp á skjávarpa og verða þær úr öllum áttum, allir spila með. Spurningarnar verða í léttari kantinum í því gleðin skiptir jú mestu máli (þó keppnisskapið megi alveg fljóta með).

 

Fyrirkomulag:
• Hvert lið er skipað tveimur einstaklingum sem velja sig sjálfir saman, ekki þarf að skrá lið heldur er nóg að mæta
• Allir sem mæta mega taka þátt
• Hvert lið fær blað og penna þegar og skrá svörin sjálfir á blað
• Spyrill spyr 30 spurningar fyrir hlé sem hvert lið svarar eftir bestu getu
• Eftir hlé skiptast liðin á blöðum við þá sem sitja næst og merkja við rétt og röng svör hjá hinu liðinu
• Þegar öll svörin hafa verið lesin upp eru stigin talin og það lið vinnur sem er með flest stig. Vegleg verðlaun í boði
• Í lok keppninnar er tilkynnt hvaða spurning var bjórspurning og fá þeir sem svöruðu rétt bjór (eða gos) á barnum
• Ekki má deila við dómarann því hann er alráður, einráður og óræður

 

Ég hvet alla til að mæta og taka þátt í þessari stórkostlegu skemmtun.

Sjáumst hress á föstudaginn,
Júlíus Arnarson (Spyrill og dómari)

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31