A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
30.08.2016 - 06:35 | Vestfirska forlagið,skutull.is

Spennandi flokksval hjá Vinstri grænum: - Fjölgar á flokksskránni

Lilja Rafney Magnúsdóttir er þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi.
Lilja Rafney Magnúsdóttir er þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi.
« 1 af 2 »
Forval Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi stendur nú yfir og búist er við spennandi kosningu.
Kosið er bréflega og búið að senda kjörseðla til allra skráðra meðlima flokksins, sem skráðir voru 21. ágúst.

Fjöldi flokksmanna í kjördæminu hefur meira en tvöfaldast á síðustu vikum og eru nú um 1100. Mesta fjölgunin hefur orðið í félagi VG á Vestfjörðum, sem nú er orðið annað stærsta félag flokksins á landsvísu, á eftir Reykjavík.

Heimildir skutuls.is segtja að baráttan um efsta sætið standi á milli Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur alþingismanns á Suðureyri, Bjarna Jónssonar bæjarfulltrúa í Skagafirði og Lárusar Ástmars Hannessonar bæjarfulltrúa í Stykkishólmi. Þá gefur Rúnar Gíslason námsmaður í Borgarnesi kost á sér í efstu sætin.


Alls gefa ellefu kost á sér í forvalinu, fimm konur og sex karlar. Póstkosningin stendur til 5. september. Atkvæði verða talin í Leifsbúð í Búðardal 12. september og þá verða úrslitin fyrst ljós.
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31