A A A
  • 1958 - Helga Sigurrós Bergsdóttir
  • 1976 - Gunnar Ragnar Hjartarson
  • 1993 - Karín Mist Kjerúlf
01.07.2015 - 06:56 | Edinborgarhúsið,BIB

Spánverjavígin 1615 - Opnun sýningar - Basknesk þjóðlög

Myndin Dýrafjarðarslagur eftir Guillermo Zubiaga.
Myndin Dýrafjarðarslagur eftir Guillermo Zubiaga.

Sýningin um Spánverjavígin 1615 hefur verið sett upp Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í tilefni af því að 400 ár eru í haust liðin frá þessum hrottalegu vígum sem áttu sér stað í Ísafjarðardjúpi og Fjallaskaga í Dýrafirði.

Sýningin verður opnuð kl. 16 laugardaginn 4. júlí 2015.

Baskneski listamaðurinn Guillermo Zubiaga teiknar átta myndir sem sýna helstu atriði sögunnar. Sigrún Antonsdóttir skrifaði textann. Úlfur Kolka hannaði sýningarspjöldin. Baskavinafélagið á Íslandi stendur að sýningunni sem er aðgengileg á fjórum tungumálum, íslensku, basknesku, spænsku og ensku. Nánari upplýsingar má finna á vefnum 
http://baskavinir.is/

 
Guðrún Ólafsdóttir söngkona á heima í Madríd. Hún og maðurinn hennar, gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui, gáfu út disk nýlega, þar sem má finna nokkur basknesk þjóðlög í útsetningum Javiers fyrir rödd, fiðlu og gítar. Þau koma fram við opnun sýningar um Spánverjavígin laugardaginn 4. júlí kl. 16 í sal Edinborgarhússins.

Hér má hlýða á hljóðdæmi:
https://soundcloud.com/gudrun-olafsdottir
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31