A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
Jónas Guðmundsson, Illugi Gunnarsson, Esther Ösp Valdimarsdóttir og Martin Garitano við minnisvarðann. Ljósmyndir: Ólafur J. Engilbertsson.
Jónas Guðmundsson, Illugi Gunnarsson, Esther Ösp Valdimarsdóttir og Martin Garitano við minnisvarðann. Ljósmyndir: Ólafur J. Engilbertsson.
« 1 af 2 »
Minnisvarði um Spánverjavígin árið 1615 á Sandeyri á Snæfjallaströnd og á Fjallaskaga í Dýrafirði eða fyrir 400 árum var afhjúpaður við Galdrasafnið á Hólmavík í fyrradag, síðasta vetrardag.

Ávörp fluttu Martin Garitano, héraðsstjóri Gipuzkoa í Baskalandi, Illugi Gunnarsson menningarmálaráðherra, Jónas Guðmundsson sýslumaður Vestfjarða og Esther Ösp Valdimarsdóttir tómstundafulltrúi fyrir hönd Strandabyggðar og Hólmavíkur. Jafnframt afturkallaði Jónas sýslumaður tilskipun fyrirrennara síns, Ara sýslumanns Magnússonar í Ögri, þess efnis að allir Baskar skyldu réttdræpir á Vestfjörðum. Leikskólabörn á Hólmavík sungu nokkur lög, Tapio Koivukari rithöfundur og fulltrúar frá Baskalandi fluttu sjóferðabæn. Einnig kvað Steindór Andersen rímur úr Fjölmóði eftir Jón lærða Guðmundsson við undirleik Ólafs J. Engilbertssonar á steinhörpu. 


Að atburðinum stóðu Baskavinafélagið á Íslandi, menningarstofnanir í Baskalandi Spánar og í Bandaríkjunum, auk mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sýslumannsembættisins á Vestfjörðum. Myndirnar sem hér fylgja eru af Facebooksíðu Ólafs J. Engilbertssonar frá Tirðilmýri á Snæfjallaströnd, formanns Baskavinafélagsins á Íslandi.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30