A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
02.06.2010 - 19:53 | BB.is

Sönglagakeppnin: 13 ára flytjandi

Agnes Sólmundardóttir
Agnes Sólmundardóttir
Söngkonan og lagahöfundurinn Agnes Sólmundardóttir frá Þingeyri kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að tónlist en hún á eitt lag í úrslitum Sönglagakeppni Vestfjarða sem haldin verður á föstudagskvöld. Ekki nóg með það að Agnes, sem er nýorðin 13 ára, hafi komist í úrslit með lag sitt, því hún á einnig texta við lagið ásamt því að hún mun stíga á svið og flytja það sjálf. Fjórtán lög keppa til úrslita á föstudag en valnefnd valdi úr ríflega fimmtíu innsendum lögum.

 

Umgjörðin utan um keppnina er öll hin glæsilegasta en áhorfendur munu velja uppáhaldslag sitt í kosningu og mun það hljóta áhorfendaverðlaun. Dómnefnd velur svo sigurlagið í lok kvöldsins en meðal þess sem verður á boðstólnum er veitingar frá strákunum á Við pollinn og stórhljómsveit keppninnar, undir stjórn Hrólfs Vagnssonar mun leika fyrir dansi að keppni lokinni. Miðar á keppnina verða aðeins seldir í forsölu, en hún er hafin hjá Magnúsi Hávarðarsyni í síma 456-7055 eða 849-2006.

« Desember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31