Síðasta stúdíóferð Jóns. Kr. Ólafssonar
Jón Kr. Ólafsson, söngvari á Bíldudal, hefur farið í sína síðustu stúdíóferð. Jón Kr. , sem er að verða 75 ára, gerði sér ferð á dögunum til þess að taka upp eitt lag -Besame Mucho-, sem samið var árið 1940 af mexikönskum tónlistarmanni.
Jón Kr. sagði í samtali við blaðið Vestfirðir að hann hefði ákveðið að láta þetta verða endapunktinn á útgáfunni. Kvaðst hann vera ánægður með útkomuna. Undirleik önnuðust Pétur Valgarð Pétursson, Þórir Úlfarsson, Jóhann Ó. Hjörleifsson, Óli Kristjánsson og Óskar Guðjónsson.
Diskurinn er einungis til í 60 eintökum og er til sölu á safninu hjá Jóni Kr. Ólafssyni á Bíldudal.
Vestfirska forlagið á Þingeyri gaf út ævisögu Jóns Kr. Ólafssonar árð 2008 – Melódíur minninganna- sem Hafliði Magnússon frá Bíldudal skráði.
Blaðið Vestfirðir 11. júní 2015