28.01.2019 - 14:29 |
Selveiðibíó í Blábankanum
Sem hluti af heimildamyndavinnustofu Blábankans verður kvikmyndin Sealers / Ishavsblod sýnd á miðvikudagskvöldið kl. 20. Trude Ottersen, annar leikstjóra myndarinnar, verður á staðnum.
Kvikmyndin fjallar um síðustu veiðiferð selveiðiskipsins Havsels, en margir Vestfirðingar kannast við það eftir að það kom við í Ísafjarðarhöfn á hverju vori um árabil meðan á fræknum veiðiferðum þess stóð við Grænlandsísinn.
Stiklu má sjá hér: https://www.youtube.com/watch?v=i_wGuI5IUIM
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.