A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
18.10.2010 - 10:47 | bb.is

Saurmengaðar fjörur á Þingeyri

Þingeyri. Ljósm: © Mats Wibe Lund
Þingeyri. Ljósm: © Mats Wibe Lund
Skolpmál eru víða í ólestri á Þingeyri að mati íbúasamtakanna Átaks í Dýrafirði. Á fundi stjórnar samtakanna sem haldinn var fyrir stuttu, kom fram að víða megi finna saurmengaðar fjörur, einkum á svæðinu frá ytri byggju að Byggðarendabót. Umhverfisfulltrúa var tilkynnt um málið í janúar og mætti hann á svæðið með skolplagnakort og myndavél til að skoða vandamálið og staðfesta það.

Í framhaldi af því hafa íbúasamtökin nú farið fram á að málinu verði fylgt eftir af fullum þunga og úrbætur tryggðar sem allra fyrst. Í bréfi samtakanna til bæjaryfirvalda segir að það sé fullkomlega ótækt að íbúar og ferðmenn á tjaldsvæði og víkingasvæði þurfi að horfa upp á þvílíkan ófögnuð.

Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar tók málið fyrir á síðasta fundi og hefur óskað eftir upplýsingum og hugsanlegan kostnað frá tæknideild um lausnir á fráveitumálum á Þingeyri.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30