A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
28.11.2012 - 16:43 | BIB

Sannar lygasögur: - Bölvað í bæn

Séra Baldur Vilhelmsson
Séra Baldur Vilhelmsson
« 1 af 3 »

Það kom fyrir að séra Baldur messaði í borðsalnum í Reykjanesi í Djúpi og fór með gott fyrir nemendur og aðra kennara skólastaðarins.
Eitt sinn í norðaustan roki og snjóhraglanda boðaði prestur til messu í fyrrnefndu mötuneyti. Við nokkrir strákar tókum okkur sæti við einn gluggann. Þegar séra Baldur var staddur í miðju Faðirvorinu, opnuðum við gluggann upp á gátt, en það var stór hverfigluggi sem kallaðir eru. Í því brast á ein stórhviðan svo allir hrukku við. Séra Baldur stöðvaðist og leit til okkar. Svo mælti hann stundarhátt svo allir heyrðu sem í salnum voru:  “Lokiði helvítis glugganum, strákar!”

Það gerðum við auðvitað og prestur lauk sinni bæn.

 

Sögn Einars Jónssonar frá Álfadal í Mannlífi og sögu 19. hefti
________________________________________________________
 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31