Samfylkingin á siglingu
*X-S mælist með um þrefalt kjörfylgi og myndi bæta við sig átta þingmönnum
*VG enn stærsti flokkurinn
*Framsókn og Sjálfstæðisflokkur standa í stað
Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú mun meira en það var fyrir viku og hefur tvöfaldast á tveimur vikum. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið dagana 9.-12. október.
Nú mælist flokkurinn með 15,3% fylgi og 11 þingmenn, sem er umtalsvert meira en það fylgi sem flokkurinn fékk í þingkosningunum í fyrra þegar hann fékk 5,7% og þrjá þingmenn kjörna.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð mælist enn stærsti flokkur landsins með 27,4% fylgi og 19 þingmenn og Sjálfstæðisflokkur er næststærstur með 22,6% og 16 þingmenn.
Björt framtíð mælist með 2,6% fylgi og næði ekki inn þingmanni og það sama má segja um Viðreisn, sem mælist með 3,4%.
Fylgi Pírata mælist nú 9,2% og stendur í stað frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar fyrir viku og það sama má segja um fylgi Framsóknarflokks, sem er 5,5%. Bæði Miðflokkurinn og Flokkur fólksins tapa fylgi frá síðustu könnun. Nú mælast flokkarnir með um 6,5% fylgi, sem myndi skila hvorum um sig fjórum þingmönnum.
Talsverður munur er á fylgi flokkanna eftir aldri kjósenda og búsetu og þá er einnig munur á því hvað fólk kýs eftir menntun þess.
Eini möguleikinn á stjórn tveggja flokka er samstarf VG og Sjálfstæðisflokks. Nokkrir möguleikar eru á þriggja flokka stjórn VG og Samfylkingar og þá gætu Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingn myndað stjórn með Pírötum.
Morgunblaðið.