12.11.2016 - 06:04 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið
Sama brot og kennslubækurnar: - Mikil saga á lítilli bók
Bókin „Konur breyttu búháttum“ er í litlu broti en óhætt er að segja að þar sé mikil saga á lítilli bók. Það er ekki tilviljun, að sögn Bjarna Guðmundssonar. Bókaútgáfan Opna mótaði formið.
Brotið er það sama og var á „Leiðarvísi um meðferð mjólkur“ sem Grönfeldt gaf út og fleiri kennslubókum sem notaðar voru í Mjólkurskólanum, og á leiðarvísi Ólafs Olaviusar um smjör- og ostagerð, sem kom út árið 1780.
Með formi bókarinnar er verið að heiðra þá sem komu skólanum upp og enn frekar konunum sem sóttu námið.