02.01.2017 - 20:58 | Vestfirska forlagið,Fjórðungssamband Vestfirðinga
Örnámskeið um gerð styrkumsókna
Haldin verða nokkur námskeið um gerð styrkumsókna, en á miðnætti mánudagsins 9. janúar rennur út umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða.
Þeir Skúli Gautason, menningarfulltrúi og Valgeir Ægir Ingólfsson, atvinnumálafulltrúi, halda örstutt námskeið í gerð umsókna og bjóða upp á viðtöl og ráðgjöf í kjölfarið.
Námskeiðin verða á eftirtöldum stöðum:
Birkimelur 3. janúar kl. 14:00
Skor Patreksfriði 3. janúar kl. 17:00
Skrímslasetrið Bíldudal 3. janúar kl. 20:30
Hópið Tálknafirði 4. janúar kl. 12:00
Bókasafnið Reykhólum 4. janúar kl. 17:00
Við vonum að sem festir nýti sér þessi námskeið, en þau eru ókeypis og öllum opin.