Orlofsferð húsmæðra
Orlofsferð húsmæðra á Vestfjörðum haustið 2016 verður farin á Snæfellsnes helgina 9.-11. september.
Farið verður frá Ísafirði kl: 14.00 föstudaginn 9. september. Ekið verður að Brjánslæk og farið með Baldri yfir Breiðafjörð til Stykkishólms.
Hægt er að koma í rútuna á gatnamótunum við afleggjarann að Flateyri, Suðureyri og Þingeyri, þær konur sem ekki geta komið í rútuna á þessum stöðum leita eftir frekari upplýsingum við skráningu.
Gist verður í tvær nætur í Stykkishólmi. Á laugardeginum verður farin hringferð um Snæfellsnesið, borðaður hádegisverður í samkomuhúsinu á Stapa.
Innifalið: rútuferðir, ferð með Baldri, gisting, tvisvar sinnum morgunverður, léttur hádegisverður á laugardag og kvöldverður á laugardag, verð: 21.000 kr.
Skráning er til 26. ágúst 2016.
Skráning og nánari upplýsingar gefa:
Dagný Finnbjörnsdóttir, sími: 865 7161
Steinunn Guðmundsdóttir, sími: 865 7368
Þorgerður Karlsdóttir, sími: 899 9562