A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
25.01.2017 - 22:33 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Opnun tilboða fagnað með lófaklappi

Arnarneshamar og veggöngin þar í gegn.
Arnarneshamar og veggöngin þar í gegn.
« 1 af 2 »

Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng var fagnað með lófaklappi í akademíunni hjá henni Tobbu í sundlauginni á Þingeyri í morgun. Suðurverk hf og Metrostav s. s. frá Tékklandi áttu lægsta tilboðið, 8,7 milljarða króna. Er það rúm 93% af kostnaðaráætlun.  Næstu tilboð voru um 630 milljónum kr. hærri, eða svipuð og kostnaðaráætlunin sem hljóðaði upp á 9.319,890,000,- kr.

Dýrafjarðargöng  verða 5,6 km löng

Dýrafjarðargöng verða 5,6 km löng, eða svipuð og Bolungarvíkurgöng. Þau munu liggja á milli Drangahlíðar í innanaverðum Dýrafirði og hlíðarinnar utan Rauðsstaða í Borgarfirði í Arnarfirði. Vegur beggja megin vegganganna frá Mjólkárvirkjun að Dýrafjarðarbrú verður 8,1 km að lengd, alls 13,7 km af nýjum vegi. Er það allt innifalið í tilboðunum.

Fyrstu veggöng á Íslandi

Og er nú rétt að rifja upp að fyrstu veggöng á Íslandi liggja í gegnum Arnarneshamar milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Voru þau sprengd 1948/1949 og eru um 30 metra löng. Yzt á Súðavíkurhlíð, úti undir Arnarnesi, var lengi verbúðahverfi nokkurt. Stunduðu menn sjó þar allan ársins hring, nema yfir hásumarið. Þar hétu Hafnir og heitir svo enn.  


« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31