14.04.2019 - 11:42 |
Öll vötn til Dýrafjarðar: Framlengdur umsóknarfrestur
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð úr sjóði sem verkefnisstjórn veitir úr í umboði Byggðastofnunar vegna ársins 2019. Umsóknum skal skilað á tölvutæku formi á þar til gerðu eyðublaði. Ath! Umsóknarfrestur hefur verið lengdur fram til kl. 16.00 þriðjudaginn 23. apríl 2019.
Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um. Vill einnig hvetja þá sem ekki fengu úthlutað síðast að sækja um aftur.
Umsóknareyðublað má finna hér. Styrkjareglur Brothættra byggða í heild sinni má finna hér.