06.03.2015 - 06:26 | BIB
Öll Vestfjarðaliðin úr leik
Eftir mjög spennandi keppni í gærkvöldi eru það norðlensk lið og Vestmannaeyingar sem eru komnir í 4ja liða úrslit í Spurningakeppni átthagafélaganna
Það eru: Siglfirðingar, Húnvetningar, Svarfdælir/Dalvíkingar og Vestmannaeyingar.
Tvö þessara liða voru að taka þátt í fyrsta skipti í keppninni, Svarfdælir/Dalvíkingar og Vestmannaeyingar.
Af þeim 19 liðum sem hófu keppni voru 10 lið af Vestfjörðum - norðlensku liðin voru 4 - austlensku liðin voru 3 og 2 lið af Suðurlandi.
Úrslitin í gær voru þessi:
Svarfdælingar og Dalvíkingar unnu Dýrfirðinga 8:7,
Vestmannaeyingar unnu Djúpmenn 9:8,
Húnvetningar unnu Breiðfirðinga 13:6
og Siglfirðingar unnu Norðfirðinga 10:5.