05.09.2012 - 13:41 | BIB
Nýnemaferð Menntaskólans á Ísafirði var í Dýrafjörð
Í síðastliðinni viku var tekið á móti nýnemum í Menntaskálann á Ísafirði.
Á miðvikudegi vígðu svo eldri nemendur busana í sinn hóp og daginn eftir fóru nýnemar ásamt umsjónarkennurum og íþróttakennara saman í ferðalag.
Farið var í Ósvör og að Núpi í Dýrafirði þar sem gist var eina nótt. Í Dýrafirði var gengið út á Arnarnes og til baka að Núpi. Seinna um daginn var gengið í garðinn Skrúð og hann skoðaður. Um kvöldið var kvöldvaka og stjórn NMÍ kom í heimsókn og sagði frá félagslífinu í skólanum. Daginn eftir fóru nemendur í ratleik og að loknum morgunverði og var haldið heim á leið.
Af heimasíðu MÍ.