28.06.2012 - 23:26 | JÓH
Ný vefmyndavél í Dýrafirði
Tölvu- og netþjónustufyrirtækið Snerpa hefur komið fyrir vefmyndavél á Höfða í Dýrafirði. Útsýnið er til vesturs út Dýrafjörðinn, frá ytri hluta Þingeyrar og yfir að Mýrarfelli. Myndin úr vélinni er lifandi, og með því að smella á hægri músarhnapp yfir henni má skoða hana i fullri skjástærð. Á vef Snerpu er þess getið að litlu hvítu deplarnir sem birtast stundum í forgrunni eru endurnar hans Sighvats á Höfða. Hægt er að fylgjast með vefmyndavélinni hér, en slóðina er einnig að finna í valmyndinni á Þingeyrarvefnum undir Tenglar.