Ný frímerki eru gefin út í dag - 16. febrúar 2017
Í dag, fimmtudaginn 16. febrúar 2017, koma út 7 ný frímerki í fjórum útgáfuröðum.
Frímerkin eru tileinkuð fyrstu ríkisstjórn Íslands, 150 ára afmæli Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur og fyrsta íslenska arkitektinum.
Þá koma fjögur frímerki út í röðinni íslensk samtímahönnun VIII sem að þessu sinni er tileinkuð textílhönnun.
Í dag voru gefin út sjö ný frímerki í fjórum útgáfuröðum hjá Frímerkjasölu Póstsins. Er um að ræða frímerki með mynd af fyrstu ríkisstjórn landsins sem kom saman fyrir 100 árum síða.
Þá er annað frímerki gefið út vegna 150 ára afmælis Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík og enn eitt tileinkað fyrsta íslenska arkitektinum, Rögnvaldi Á. Ólafssyni.
Fjögur ný frímerki í áttundu frímerkjaröðinni um íslenska samtímahönnun voru einnig gefin út í dag og eru þau nú tileinkuð textílhönnun.
Um Rögndald Ólafsson:
Rögnvaldur Ágúst Ólafsson hefur verið kallaður fyrsti íslenski arkitektinn.
Hann fæddist að Ytri Húsum í Dýrafirði árið 1874 og ólst upp á Ísafirði.
Hann lauk prófi frá Lærða skólanum 1901 og sigldi til Hafnar til náms sama ár. Rögnvaldur var fyrsti Íslendingurinn sem fékkst einvörð- ungu við að teikna hús.
Hann varð ráðunautur landsstjórnarinnar um opinberar byggingar árið 1906.
Þótt starfstími hans yrði aðeins um 12 ár liggja eftir hann 30 kirkjur, 30 hús í Reykjavík og tugir annarra húsa víða um land. Hann teiknaði mörg af glæsilegustu timburhúsum sem reist voru í Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar.
Mörg húsa Rögnvaldar eru íslensk útfærsla á sveitserstíl og ný-klassík. Eitt af þekktari verkum Rögnvaldar er Húsavíkurkirkja sem var vígð 1907.
Nokkur önnur verk hans voru Vífilsstaðaspítali, reistur 1908, og Þingeyrarkirkja sem er einnig steinhús og í gotneskum stíl.
Vífilsstaðahælið var hans stærsta verk og þar lést hann sjálfur úr berklaveiki árið 1917, aðeins 42 ára að aldri.
Bók um Rögnvald Á. Ólafsson og verk hans kom út síðari hluta árs 2016. Höfundur er Björn G. Björnsson hönnuður.