03.04.2016 - 21:27 | Hallgrímur Sveinsson
Nú fær Vegagerðin prik!
Vegagerðin okkar er oft í umræðunni. Það er eðlilegt eins og samgöngumálin eru stór liður í tilveru manna hér vestra. Oft finnst fólki að henni séu mislagðar hendur. Það er bara þannig. En svo kemur það fyrir, kannski oftar en menn vilja viðurkenna, að þetta opinbera apparat okkar gerir góða hluti.
Er nú skemmst frá að segja að búið er að hefla veginn fram Brekkudal í Dýrafirði, í kjölfarið á mokstri á Hrafnseyrarheiði. Segja má til gamans að elstu menn muni jafnvel ekki annað eins. Oft hefur það dregist jafnvel vikum saman að malarvegirnir hér um slóðir séu heflaðir á vorin eftir að vegir þorna. En nú var umræddur vegur alveg tilbúinn að taka á móti veghefli, enda var hann heflaður!
Nú fær Vegagerðin prik og ekkert múður með það!