Napóleon í Dýrafirði
Þann 30. júní 1856 kom Napóleón prins, bróðursonur Napóleóns keisara Frakka, til Reykjavíkur á herskipi nokkru.
Á ferðalagi sínu gerði hann síðan stans í Dýrafirði en þar höfðu Frakkar hug á að húrra upp fiskiðju og verslun þar sem íbúafjöldinn gæti orðið í framhaldinu nokkur þúsund manns.
Napóleon prins gefur evrópskan tískugrip til Íslands
Sumarið 1856 heimsótti Jerome Napoleon prins, bróðursonur Napoleons I, Ísland á herskipi ásamt tónlistarmönnum, ljósmyndurum og vísindamönnum.
Hann færði Pétri Péturssyni, sem á þeim tíma var einn valdamesti maður Íslands bæði í stjórnmálum og trúmálum, spiladósina að gjöf. Árið 1856 var hann fulltrúi konungs á ný endurreistu alþingi og fulltrúi í sveitarstjórn Reykjavíkurbæjar. Áratug síðar varð hann biskup yfir íslensku þjóðkirkjunni.
Spiladósin var enn verðmætari gjöf vegna þess að möguleikar til skemmtanahalds voru takmarkaðir á Íslandi, og því engin tækifæri til að hlíða á tónlist. Auk þess er líklegt að spiladósin hafi verið sérpöntuð ef haft er í huga hve mikið er lagt í gerð hennar.
Spiladósin er nú varðveitt í Þjóðminjasafninu.
Björn Ingi Bjarnason