Næstum 100 manns keppa á Íslandsmóti 60+ í pútti
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) heldur sína árlegu púttkeppni fyrir 60 ára og eldri fimmtudaginn 18. ágúst kl.13.00 á púttvelli Reykjanesbæjar við Mánaflöt.
Púttklúbbur Suðurnesja hefur allan veg og vanda að mótinu ásamt stjórn FÁÍA. Mæting á púttvöllinn er kl 12.30, en þar verður skipt í ráshópa.
Til leiks eru skráðir 95 keppendur frá 11 félögum um land allt.
Mótið er keppni milli einstaklinga, karla og kvenna, en einnig liðakeppni.
Keppendur er óheimilt að æfa á púttvellinum klukkutíma fyrir mót.
Hver félagsmiðstöð eða aðrir staðir þar sem aldraðir æfa pútt geta sent keppendur/lið.
Í hverju liði/sveit skulu vera 4 leikmenn. Einstaklingar án liðs geta skráð sig í einstaklingskeppnina.
Helstu upplýsingar um púttkeppnina í Reykjanesbæ:
Dagsetning: Fimmtudaginn 18. ágúst 2016.
Staður: Púttvöllur Reykjanesbæjar við Mánaflöt v/sjúkrahúsið.
Timasetning: Mótið hefst kl. 13.00, mæting 12.30. Áætlað að því ljúki um kl. 16.00
Keppnisfyrirkomulag: Keppt í einstaklings- og sveitakeppni, 4 skipa sveitina. Leiknar eru 2 x 18 holur