02.10.2012 - 20:51 | BIB
NÚMER EITT Í SÖGULEGUM SKÁLDSÖGUM
Skáldsaga Dýrfirðingsins Vilborgar Davíðsdóttur, Galdur, er í fyrsta sæti á metsölulista yfir sögulegar skáldsögur á ensku í Þýskalandi.
Galdur, sem á ensku nefnist On the Cold Coast, kom fyrst út hjá Random House í Þýskalandi en er nú komin út á ensku hjá AmazonCrossing.
Þessa dagana er verið að prenta nýja skáldsögu eftir Vilborgu sem kemur út fyrir jólin. Skáldsagan ber titilinn Vígroði og er framhald á söguAuðar djúpúðgu, sem kom út fyrir þremur árum og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.