26.02.2016 - 12:32 | Hallgrímur Sveinsson
Mynd dagsins: - Það er svo gaman í strætó!
Um daginn var list á list ofan á Þingeyri. Það var bara allskonar. Frá Litháen og allt. Segja má að á Þingeyri hafi þá verið alþjóðlegt listatorg í margar vikur. Þar létu listamenn af ýmsum þjóðernum ljós sitt skína. Einkum þó frá Litháen. En eins og margir vita eru Íslendingar virtir og dáðir í því landi. Þetta eru vinir okkar.
Í strætisbílnum var flutt dramatísk veðurlýsing á íslensku. Var eiginlega dálítið dularfullt. En þetta var voðalega gaman eins og krakkarnir segja. Það sést greinilega á farþegunum. Fremst er bílstjórinn skulum við segja. Hún Björg Sveinbjörnsdóttir frá Suðureyri.