A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
20.09.2015 - 06:45 | Hallgrímur Sveinsson

Merkilegar fornminjar á Auðkúlu í Arnarfirði

Kirkjurúst til hægri og kirkjugarður til vinstri. Mosdalur í baksýn. Ljósm.: H. S.
Kirkjurúst til hægri og kirkjugarður til vinstri. Mosdalur í baksýn. Ljósm.: H. S.
« 1 af 4 »

Fyrir nokkrum árum kom Guðný Zoega fornleifafræðingur að Auðkúlu í Arnarfirði til að skoða gamlar húsaminjar eða rústir í svokölluðum Parti sem er utan við Auðkúluána. Var það að frumkvæði Hreins Þórðarsonar bónda þar á bæ. Guðný er gömul vinkona hans frá því hún var að alast upp í Mjólkárvirkjun á sínum tíma. Þessi skoðun hennar leiddi ýmislegt áhugavert í ljós. Unnið var svo í 2 vikur í sumar að nánari rannsókn umræddra minja undir stjórn Margrétar H. Hallmundsdóttur, fornleifafræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða.

Í ljós komu eftirfarandi fornleifar:

  1. Kirkja og kirkjugarður.
  2. Bygging sem er líklega skáli, 17 – 18 metra langur.
  3. Leifar af járnvinnslu. Mikið af gjalli fannst á svæðinu, en smiðjan ófundin.

   Nú er beðið eftir aldursgreiningu á fornleifunum á Auðkúlu.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30