A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
22.07.2017 - 11:05 | Vestfirska forlagið,Menningarsjóður vestfirskrar æsku,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

MENNINGARSJÓÐUR VESTFIRSKRAR ÆSKU AUGLÝSIR EFTIR STYRKUMSÓKNUM

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.
Á síðasta ári voru veittir styrkir að upphæð 450 þúsund til þriggja ungmenna frá Vestfjörðum.

Í stjórn sjóðsins eru:
Haukur Hannibalsson,  Ásdís Sæmundsdóttir og Sigurður H. Magnússon.

 

Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2017 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemandaefni hans og aðstæður.

Netfang:  haukurhannibalsson@simnet.is.


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31